Ég var stödd í ljósmyndaverkefni á Snæfellsnesi. Í einni pásunni tók ég eftir dálitlu merkilegu...
Ég settist niður í mosaþakta hraunbreiðu og fór að skoða munstrið í náttúrunni..
Áður en ég vissi af var ég dáleidd af áferðinni, litunum og andstæðunum í hrauni og mosa.
Þá fór af stað lítið ævintýri þar sem ég fór að safna myndum af mynstrum úr náttúru Íslands.
Í framhaldi af myndunum fór ég að búa til ljóð þar sem ég tengi saman móðureðlið við móður náttúru.